15.08.2009 20:21:16 / saga
Datt í hug að henda inn einu bloggi svona í lok sumars. Spurning hvort það er einhver sem kíkir hérna inn ennþá? Ég er allavega búin að eiga geggjað sumar. Mikil mikil vinna en í dag var síðasti vinnudagur og nú skal sumarfríinu fagnað. Má segja það? Ég er farin að ryðga í íslenskunni...en það hjálpar að Hrefna er flutt til Noregs og við hringjum frítt á hverjum degi
Fyrstu tveir mánuðir sumarsins fóru í rannsóknir útí skógi eins og í fyrra, nema núna á launum SPLING!!
Svo er ég búin að vera einn mánuð hjá póstinum og á morgun er fyrsti frídagurinn minn í ágúst mánuði! Sjúbbídú!! Svo styttist í Íslandsför! Bara 10 dagar í brottfarardag! Djööö það verður yndislegt!! Akkurat núna er ég að bíða eftir að Sandra vakni svo við getum trillað niðrí bæ á vit ævintýranna. Get talið bjóra sumarsins á fingrum 1 og 1/2 handar held ég barasta útaf vinnu. Allavega næstum. Ef ég tel liðamótin allavega. Þá dugar kannski önnur höndin. Ef ég væri drottning þá myndi ég innleiða mjólkurkrana í öll eldhús, við hliðina á vatnskrananum. Að þurfa að versla mjólk á hverjum degi er eins og að þurfa að bera vatnið heim úr búðinni. BBB (Bullið Búið í Bili)Sagan a.k.a. captain Super-Thumb
»
19.04.2009 16:02:21 / saga
Já það er satt!! Eftir langa bloggpásu og töluvert af kvörtunum hef ég ákveðið að nú sé kominn tími til að byrja aftur...Ég nenni ómögulega að segja frá öllu sem á daga mína hefur drifið síðan síðast og fólk nennir ómögulega að lesa um það svo allir eru sáttir. En smá upptalning verður samt að fá að fylgja með, allavega á því sem ég man...Eftir heimkomuna frá Svalbarða tóku við 2 intensífar vikur fyrir framan tölvuskjáinn, ca. 10 tímar á dag að vinna í tölfræðiverkefni. Það er eiginlega aðalástæðan fyrir bloggleysinu, hef forðast tölvur sem heitann eldinn
Svo vann ég hjá póstinum nokkra daga fyrir páska og búin að eyða 2 dögum í felti sem var æðislegt. 1-2 metrar af snjó í fjöllunum svo ég þurfti að setjast niður í snjóinn til að laga fuglakassana í staðinn fyrir að teygja mig upp í þá. Þetta voru yndislegir dagar á skíðum og snjóþrúgum, héraspor út um allt, spor eftir otra sem renna sér niður brekkur á maganum, hreysikettir og elgir. Páskarnir voru svo fínir, gestir flest kvöld, kíkt í bæinn og svo skrapp ég í heimsókn til Söndru í vinnuna. Hún vinnur sem dýrahirðir hjá avdeling for arktisk biologi (deild fyrir norðurheimskautalíffræði) svo ég fékk að gefa selum og heilsa uppá moskuxa og hreindýr, bara gaman
Það eru svo ekkert óskaplega spennandi tímar framundan, 2 vikur af prófalestri. En eftir það verður slett úr klaufunum og svo haldið til Spánar til mömmu og Hjörvars í eina viku. Ég er búin að pakka skordýra og fuglabókinni og snorklgræjunum (ef ég ætti svoleiðis) og hef fengið þær upplýsingar að það er sko ekki skortur á lífi á þessum slóðum. Þegar ég kem til baka bíða mín 2 mánuðir í skógunum í fjöllunum og ég get ekki beðið! Hér lætur vorið bíða eftir sér (ekki það að ég sé farin að bíða). Akkurat núna snjóar sem aldrei fyrr og það er ennþá a.m.k. 1 meter yfir öllu. Yfir páskana bráðnaði þó allt af götunum eftir fyrstu rigningu ársins en nú eru sem betur fer komnar mínusgráður aftur og snjókoma
Ég ætla að láta þetta yfirlit duga í bili, borgar sig ekki að fara of geyst af stað!Ársgamall moskuxi sem ég heilsaði uppá:
»
23.02.2009 10:57:20 / saga
Hallò hallò! Veit èg er bùin ad vera svooooo løt ad blogga ad thad er fyrir nedan allar hellur!! Lìka Hellu.
Ætla nù bara adeins ad làta vita af mèr, nenni ekki ad skrifa einhver òskøp à ùtlenskt lyklabord...
En ì stuttu màli thà var haldid innflutningsparty à Øvre Markvei 13 à laugardaginn og var svona ìslenskt thema. Eg malladi tvì 12 L af kjøtsùpu, baud upp à hàkarl og brennivìn àsamt magàl. Kjøtsùpan var ètin upp til agna og potturinn sleiktur en thad sama gilti ekki um hàkarlinn. Thò smøkkudu nanast allir og vidbrøgdin voru allt frà tvì ad skirpa honum ùt ùr sèr og næstum æla upp ì thad ad brosa og borda 5 bita ì vidbòt!!
Thad var vel mætt, a.m.k. 30 manns komu vid yfir kvøldid og nòttina. Svo var bara tekid til, hent ì upptvottavèlina og farid ad sofa.
Sunnudagsmorgun fòr ì ad henda ofan ì bakpokann og skìdapokann øllu sem vid hèldum ad kæmi ad gòdum notum à Svalbarda og svo skutladi Johan mèr, Elisabeth og Heather à flugvøllinn. Adflugid ad Svalbarda var vægast sagt stòrkostlegt! Hvìtìr ævintyratoppar svo langt sem augad eygdi, badadir ì appelsìnugulum sòlargeislum. Svo là hafìsinn misthykkur svo langt sem augad eygdi ì hina àttina! Vid lentum ì blìdskaparvedri, birtu og 20 mìnusgràdum og vorum vid Heather ad sjà Svalbarda ì fyrsta skipti ì bjørtu! 
Svo var bara verslad ì matinn, komid sèr fyrir, ùt ad borda à Huset, spila spil vid arineldinn og svo lagt sig.
Vid bùum à hòteli rètt vid hàskòlasetrid tvì thad var fullt ì nemendahùsunum. Vid høfum tvì arin/TV stofu, gameroom med pool-bordi og tekur bara 5 min ad labba ì skòlann ì stadinn fyrir 35 min. Borgum samt bara sama og fyrir nemendahùsin og hàskòlin borgar mismuninn 
Ì dag var à planinu skìdaferd upp à Lars-jøkul en thad er bara vindur og skafrenningur og -25 gràdur og augasteinarnir frusu nànast à leidinni ì skòlann svo vid hættum vid
Veltum fyrir okkur jøklahellaferd en fannst of kalt fyrir thad lika. Tvi sitjum vid ùti ì skòla ì dag og lesum fyrir pròfid sem verdur eftir 2 vikur. Thà getum vid med gòdri samvisku eytt næsta sòlardegi à skìdum uppà jøkli! 
P.S. lìtil krùttlega Svalbardahreindyr eru vappandi um bæinn ì dag! 
»
26.01.2009 09:38:00 / saga
Í tilefni tveggja afmæla ákvað ég að bloggfríinu væri lokið. Fyrsta afmælisbarn dagsins er hún mamma mín heima á klakanum og vil ég óska henni til hamingju með daginn!!
Hitt afmælisbarnið er nú frekar huglægt en það er mánaðar afmæli bloggfrísins (ef við tökum með jólakveðjuna) og hér með líkur hinni stuttu ævi þess. Svo er eiginlega eitt afmælisbarn í viðbót, sem á þó ekki afmæli fyrr en á morgun en það er hann pabbi minn og fær hann að sjálfsögðu líka afmæliskveðjur!!
Jæja. Veit nú ekki hvar ég á að byrja. Desember. Jólahlaðborð líffræðistofnunar var haldið með pompi og prakt þann 5. des. Þangað mættu allir prúðbúnir kl. 16 á föstudeginum og svo var troðið í mann öllum mögulegum sjávarréttum (kóngakrabbi er bæði ðe vei delikatesse!!) og svo var tjúttað og dansað með kennurunum fram til kl. 6 um morguninn. Ágætis djamm það
Já prófunum lauk snemma í desember og gengu þau (eða það og eitt verkefni) glimrandi vel. Eftir að prófum lauk var ýmislegt brallað. Ég fór reyndar beint að vinna hjá póstinum og gerði það í tæpa viku fyrir heimför. En við skelltum okkur 7 saman í hyttetur til Malangen eina helgi og létum fara vel um okkur, strákarnir elduðu dýrindis elg steik og svo var setið við viðarofninn í eldhúsinu og sötrað á kvöldin. Strákarnir reyndu fyrir sér á refaveiðum en gekk ekki svo vel. Síðasta daginn fyrir Íslandsför pakkaði ég öllu niður í hyblunni minni á Kvaloya og flutti draslið í nýju íbúðan í Tromsö. Morguninn eftir var svo haldið heim á leið á kreppu klakann. Til þess að gera langa sögu stutta (sé að ef ég held svona áfram þá verð ég aldrei búin) þá kemur jólafríið í punktaformi:- Endurfundir Öskjubúanna voru einn af hápunktum jólafrísins!! Yndislegu krúttín mín!

- Koma heim í mat, mat, mat og meiri mat hjá mömmu!
- Hitta allar vinkonurnar fyrir austan!
- Hitta nýjasta krumpubarnið hana Brynhildi Unu
- Gekk á Lolla á jóladag
- Jeppatúr á Eskifirði á Lödu sport með Dána, Elínborgu og Bjössa
- Svartfugls túrinn mikli með sama fólki + Gauja þar sem ég skaut mína fyrstu bráð, litla teistu!

- Námuskoðun í silfurbergsnámunni á Helgustöðum
- Ferð á Jökuldal þar sem Dáni og Elínborg tóku á móti mér og við brunuðum um alla Jökuldalsheiði á fjórhjólum
- Áramótadjamm
- Ferð Vestur í Dali sem hófst með jólaboði stórfjölskyldunnar í Hjarðarholti
- Í Hjarðarholti brunaði ég um landareignina á sexhjólinu, yfirleitt með Grýlu á pallinum

- Nudd hjá Auði elskunni! Hún fær skoooo meðmæli frá mér!!!
- Heimsókn í Öskju með laaaaaangþráðu hacky í hádeginu!!
- Hitta Garfield!!
Gleymdi pott þétt slatta! Sorry en það er bara týpísk ég! Ég vil samt senda stóóóóórt knús til minnar yndislegu og frábæru Ásdísar fyrir að sækja mig og skutla mér á flugvöllinn og knúsa mig og passa mig og nenna endalaust að snúast með mér!! Þú ert best!!
Svo er bara búin að vera sæla síðan ég kom út aftur. Við erum fluttar inn í nýju íbúðina, ég og Elisabeth, og búnar að fá leigjanda í litla herbergið líka. Sá er frábær drengur að nafni Johan sem er 25 ára líffræðinemi (eins og við, þ.e. líffræðinemi, ekki 25 ára). Hann er sannkallaður handy-man og er búinn að redda öllu sem redda þarf. Eina vandamálið er að hann kemur frá Skáni í Svíþjóð og því frekar erfitt að skilja hann en hann er vanur því svo þetta reddast
Við erum orðin eins og lítil fjölskylda og sitjum öll kvöld í stofunni okkar með skáþakinu og tréveggjunum, yfirleitt með gesti, teppi, tebolla og eitthvað nýbakað eða nýlagað. Ótrúlega kósý! Skólinn er svo byrjaður á fullu og er þessi önn ansi strembin! Allir fyrirlestrar verða búnir um miðjan/lok mars (þar á meðal tvær vikur á Svalbarða sem enda með prófi). Svo eru próf 2 próf + verkefnaskil um miðjan apríl. Það er því mikið vinnuálag þar sem allt er búið svo snemma. Svo komst ég í samband við konu sem á tvo íslenska hesta, mæðgurnar Von og Villimey. Hana vantar þjálfun fyrir Villimey sem er 11 vetra brún meri, og var ég að sjálfsögðu meira en lítið til í það. Er búin að fara í einn prufutúr og mér líst mjög vel á hana
Hún byrjaði náttúrulega á því að athuga hvað hún kæmist upp með mikið en það fer fljótt úr henni. Mjög skemmtilegt reiðhross svo ég er í skýjunum. Hún verður reyndar bara hér til 11. febrúar. Þá fer hún suður í þjálfun fyrir sýningar sem verða í maí en svo kemur hún aftur í júní og then she's all mine!
Framundan er svo bara að verða flink á skíðum svo ég geti farið að fara með í topptúrana (Elisbeth og Johan búin að vera á fjöllum alla helgina á meðan ég var að vinna) og svo er bara mánuður í Svalbarðatúrinn hinn seinni. Nú erum við að plana helgarferð fyrri helgina okkar þar.Fyrir Svalbarða túrinn byrjar samt veiði námskeiðið mitt sem mun ljúka með prófi í júní. Þetta er ekkert bara 2 kvöld eins og heima á Íslandi. Þurfum að læra allar dýrategundir, allt um mismunandi veiðihunda, lög og reglur að sjálfsögðu, veiðiaðferðir og svo mætti lengi telja. Get ekki beðið
Jæja þetta er orðið drullulangt og ég þarf að fara að lesa! Adjö!!
»
26.12.2008 20:15:03 / saga
Vil óska öllum gleðilegra jóla og vona að þið þurfið ekki á sjúkrahús vegna ofáts!

Ég er í jólafríi og of löt til að blogga!

Jólaknús!
»
02.12.2008 23:32:44 / saga
Eða ekki...eða bæði...bæði betra. Mjá. Finnst þessa dagana eins og ég þurfi að halda í heilann minn svo hann fljúgi ekki eitthvað suður á bóginn með síðustu fuglunum. Er svo mikið að gera að ég sit og horfi á blöð og bækur allan daginn og áorka nákvæmlega engu. Sem er ekki gott. Til þess að afgreiða Svalbarða túrinn:Seinni vikan var ekki síðri en sú fyrri en einkenndist meira af djammi. Brölluðum ýmislegt, s.s. thursday gathering á UNIS þar sem allir koma saman við arineld og sötra bjór, héldum lutefisk-fest og fannst ÖLLUM lutefiskurinn góður og að sjálfsögðu var honum skálað niður með Aquavit að norskum hætti, við skelltum okkur aftur í blak, fórum á rokktónleika með sjúku lókal bandi sem heitir Schmeerenburgh ef ég man rétt, borðuðum kebab um nóttina í eina skyndibitabíl Svalbarða - Rauða ísbirninum, fórum út að borða á Kroa, ég verslaði mér fjallaskíði og svo man ég ekki meir. JÚ! Við héldum á menningarkvöld í Námu 2b. Eins og ALLIR vita er mikil kolavinnsla á Svalbarða og mikið af gömlum námum sem hafa ekki verið í notkun í áratugi. Það var semsagt boðað til kvikmyndasýningar í Námu 2b sem er uppi í miðju fjalli fyrir ofan Nybyen. Það var því klöngrast uppeftir með öll hlý föt og vetrarsvefnpokann með sér. Mínusgráðurnar voru 20 talsins. Það mætti hellingur af fólki! Örugglega 30 manns a.m.k. og var horft á Winged migration á strekktu laki en hún fjallar um hið stórkostlega far fugla. Þetta var mögnuð upplifun en jafnframt sú kaldasta ævi minnar. Um leið og myndin var búin stakk ég alla af og hálf rúllaði niður fjallið og beinustu leið heim. Þá voru tærnar mínar orðnar eeeeeeeld rauðar...sem betur fer því ég var hrædd um að þær væru krítkvítar. Kveðjustundin var tregafull á flugvellinum í Tromsö þegar allir héldu áfram nema ég, Elisabeth og Nicolas. En við hittumst aftur í febrúar og það verður banana stuð! Hahahah (ég er að hlæja að mínum eigin brandara). Ég nenni ekki að henda inn myndum...allavega ekki strax. Nema einni...það var semsagt brallað aðeins fleira eftir allt Aquavítið...
Eftir 7 daga setu við tölvuskjáinn, frá morgni til kvölds, er GIS prófaverkefninu lokið og ég búin að búa til kort af Tromsö út frá gervihnattamyndum, georeferensa þær, skilgreina mismunandi landsvæði, setja vegi inná, hæðarlínur, vötn og fleira ásamt því að athuga hvernig eyjan liti út ef yfirborð sjávar myndi hækka um 5-15. FUN FUN FUN! Næst er munnlegt próf í fisk og vilt á þriðjudaginn...ó shit fuck...en fyrst er julebord með líffræðingum og jarðfræðingum á föstudaginn og svo gospel jólatónleikar á sunnudaginn þar sem Elisabeth kemur til með að láta ljós sitt skína. Fyrst býður Ragnhild í kaffi og köku(r) í seglbátnum...nammm
Og eitt mjög svo mikilvægasta mikilvægt að lokum:TIL HAMINGJU MEÐ STELPUNA BORGHILDUR OG RÚNAR!!!!
Pelvis has left the building...
»
17.11.2008 22:09:45 / saga
Já ég er á lífi, þrátt fyrir mikinn kulda og 3-5 þús ísbirni
Dvölin hér á norðurheimskautinu hefur verið hreint út sagt frábær hingað til! Hér er myrkur allan sólarhringinn og frostið á leið niður í -30°C. Gangan í skólann tekur rúman hálftíma niður dalinn og jeminn hvað það getur verið kalt! Við erum búin að komast að því að ef allt frýs í nefinu án þess að maður andi um það, þá er frostið komið í ca. -20°C - hávísindalegar rannsóknir! UNIS - háskólasetrið í öllu sýnu veldi:
Hér kemur svo skýrslan:--> Mánudagur, 10. nóvemberFyrsta daginn var byrjað á því mikilvægasta - nefnilega öryggisatriðunum. Fengum að vita að það væri í rauninni hvergi óhætt að fara yfir jökla þó það væri ekkert hægt að komast án þess að fara yfir jökla. Það væru 3.000 - 5.000 ísbirnir á svæðinu og við mættum ekki fara út úr bænum án þess að hafa a.m.k. einn riffil og blysbyssu með í för. Við verðum líka að skrifa í bók heima í anddyri hvert við ætlum, hverjir, með hvað marga riffla og öryggisbúnað og hvenær við kæmum til baka ( ef það stenst ekki verður farið út að leita). Svo var haldið á skotæfingasvæðið og rifflarnir (Ruger M77 .30-06) hálfhlaðnir, svo hlaðnir og svo bara að byrja að skjóta börnin góð. Þetta var sko mega adrenalín þar sem ég hef aldrei skotið áður, kominn tími til enda styttist í skotveiðileyfið. Fannst ég nú bara standa mig fjandi vel í fyrsta skipti miðað við að ég einbeitti mér bara að því að knúsa riffilinn eins fast og ég gæti til að minnka bakslagið hehe. Tara:
--> Þriðjudagur, 11. nóvemberÞriðjudagurinn var plöntudagur og var byrjað á fyrirlestrum um aðlaganir plantna að lífi í permafrosti og skítakulda. Svo var haldið út í myrkrið og leitað uppi plöntur í snjónum. Þær svo færðar inn á labba, greindar og safnað fræjum. Svo verður þeim sáð og við sjáum svo í febrúar, þegar við komum aftur, hversu stór hluti lifði. Þetta var nú frekar svæfandi þessi frætalning í víðsjánni en túrinn út var skemmtilegur. Rákumst á Svalbarða-rjúpu en þær tvöfalda þyngd sína fyrir veturinn og hreyfa sig svo sem allra minnst fram á vor til að spara orku. Greyið klumpurinn sat því þarna í skaflinum, hreyfingarlaus á meðan hún var grandskoðuð
--> Miðvikudagur, 12. nóvemberMiðvikudagurinn var svo snjódagurinn mikli. Frábær eðlisfræðingur að nafni Karl Egede Böggild kenndi okkur allt um snjó og eiginleika hans og okkur til mikillar furðu er helling hægt að læra um snjó og þetta var skemmtilegt í þokkabót! Fyrir hádegi var svo pakkað búnaði í snjóbílinn, allir klæddir í snjósleðagalla, andlitshlífar, skíðagleraugu og tilheyrandi og svo brunað út í myrkrið. Við mældum snjó, snjóalög, hitastig og fleira ásamt því að ærslast aðeins í sköflunum. Eldhúspartý um kvöldið í brakka 3 
--> Fimmtudagur, 13. nóvemberÞetta var stuttur dagur í skólanum. Skelltum snjógögnunum frá deginum áður upp á vegg á lásum úr þeim hvernig veðrið hefði verið þetta haustið - mjög svo áhugavert! Svo var haldið í bæinn (ef svo er hægt að segja) og byrjað á kaffihúsinu með heitt súkkulaði og kanilbollur. Svo var farið á búðaráp (sem entist nú ekki mjög lengi sökum skorts á búðum) og verslað smá póstkort og annað smotterí. Um kvöldið kíkti ég svo með Elisabeth yfir í brakka 4 þar sem vinir hennar frá því í vor búa. Þar fékk ég að smakka Svalbard rein, ótrúlega krúttileg hreindýr. Stuttfætt, kafloðin og bragðgóð með eindæmum. Svo horfðu líffræðingarnir saman á ísbjarnarmynd frá National Geographic sem fjallaði um ástæðuna á bak við það afhverju ísbirnir ráðast á fólk. Það er nefnilega út af því að þeir verða svo stressaðir yfir öllum látunum sem mennirnir búa til, snjósleðar og flugvélar og svoleiðis. Gátum skemmt okkur konunglega yfir þessu
Það er semsagt ekki leyfilegt að taka skotvopn með sér inn í bankann:
--> Föstudagur, 14. nóvemberFengum að sofa út en svo var haldið í skólann og lært um hryggleysingja á Svalbarða. Um kvöldið var svo eldhúspartý í brakka 3 (þar sem við búum öll saman gaman) og svo tókst okkur Matteo að hrista upp hressleikann í liðinu og var því haldið á djammið í Huset sem er nokkurskonar kúltúrhús hér í bænum. Veitingastaður, sunnudagsbíó, fínn veitingastaður, sjoppa, bar og skemmtistaður. Þar var nú heldur betur hress DJ með "æðislega" tónlist en eftir nokkur glös af hræódýru alkóhóli var hópurinn mættur á dansgólfið í 5. gír!
--> Laugardagur-Sunnudagur, 15.-16. nóvemberFólk vaknaði mishresst eftir fredagstjúttið hehe en nú var kominn tími til að pakka niður í bakpokana, festa svefnpokann utaná og skunda niðrí bæ. Förinni var heitið til Björndalen þar sem stúdentaskáli einn stendur í fjallshlíðinni. Fyrst var að sjálfsögðu haldið niður í skóla og sótt rifla og blysbyssur. Svo pöntuðum við okkur leigubíl (letingjarnir) sem keyrði okkur góðan part af leiðinni þar til hann komst ekki lengra. Tók þá við gangan...allavega í 2 mínútur. Þá sáum við eitthvað stórt og hvítt bera við himinn í myrkrinu, beint framundan. Það var eins og liðið hefði séð geimveru og allir stoppuðu og virtu fyrirbærið fyrir sér. Í snarhasti var rifillinn dreginn fram, hálfhlaðinn og miðað...blysbyssan var komin í viðbragðsstöðu. Allir voru með hugann að því sem við lærðum á öryggisnámskeiðinu á meðan augun störðu út í myrkrið. Allir bakpokar voru losaðir og sigu niður í snjóinn. Svona stóðum við í a.m.k. 2 mínútur og þrættum um það hvort þetta hreyfðist eða ekki. Eftir stutta stund var tekin sameiginleg ákvörðun um að nálgast fyrirbærið hægt í hnapp með riffilinn fremst. Svo vorum við komin svo nálægt að við gátum lýst upp fyrirbærið með höfuðljósunum....fjúúúúúffffffffffffffffffffffffffffffffffffffff....þetta er ég semsagt að knúsa "ísbjörninn"
Restin af ferðinni gekk stórvel og allir voða léttir í lundu eftir að feginleikinn umlék okkur! Það tók svo 4-5 tíma að hita skálann með kolaofnunum en svo var hrikalega kósý og við borðuðum beikonkjötsúpu, sötruðum rauðvín og heitt kakó. Spiluðum á gítar fram yfir miðnætti og skriðum svo í svefnpokana. Má geta þess að það er mjög skemmtilegt að fara á "klósettið" í Björndalen. Læðast út með höfuðljósið í -20°C, kíkja eftir ísbjörnum í kringum húsið, hlaupa út að kassanum og ljúka sér af. Vorum svo heppin að enginn þurfti að brenna poka fyrir heimferðina hehe (to much info). Myndin segir allt sem segja þarf 

Það tók svo 2 tíma að steikja beikon á kolahellunum daginn eftir þar sem skálinn var gaslaus...helmingurinn af hópnum hafði farið eldsnemma til þess að taka þátt í kayak-póló móti (don't ask!). Við fengum heimsókn af tveimur göngugörpum en þau höfðu einmitt lent í því sama og við með "ísbjörninn" - þetta er náttúrulega fáránlegur staður fyrir stóran hvítan hlut! Svo var haldið heim á leið og gengum við í einn og hálfan tíma þar til við vorum sótt, ííííííísköld og sæl. Allir í sturtu og svo var haldið til Huset og borðað inner fillet, kartöflugratín, rauðvínssósu, súkkulaði fondant og bjór....ahhhh. Geggjuð ferð í alla staði 
Huset:

--> Mánudagur, 17. nóvemberSkóli og skóli og skóli. Bara fyrirlestrar í dag. Fólk frekar í afslöppunargírnum eftir helgina og var því bara borðað gott og slappað af í kvöld
Vona að þetta hafi ekki verið allt of langdregið....
Hendi inn myndum undir myndasöfnin hér uppi til hægri! Ha de bra så lenge!
»
04.11.2008 23:56:05 / saga
Byrja á því að vara við að þetta verður langt! Búin að punkta niður allt, svo ég gleymi engu
Hugsanlega síðasta blogg fyrir Svalbarða túrinn en nú eru bara 5 dagar í brottför! Jibbíjeij! En það er nú alveg netsamband þar sko þannig að það er óþarfi að örvænta. Það er mikill spenningur í gangi fyrir ferðinni hjá okkur Elisabeth og okkur til mikillar ánægju er spáð -20°C og litlum 2 m/sek í næstu viku, algjörlega eins og í draumi! Þar er nú myrkratíðin byrjuð og því enga sólarglætu að sjá fyrr en í febrúar - bara þeim mun meiri norðurljós! Fyrir Svalbarðatúrinn er eftir einn vinnudagur hjá Póstinum næsta laugardag en á morgun á ég að mæta á eitthvað bull-námskeið...bæta andann og kynna markmið og hvetja starfsmennina eitthvað blabla...eins og heyrist kannski er ég ekki alveg að nenna því...en jæja...fæ allavega MEGA laun í þessa fjóra tíma...4*298 NOK = 23.000 ISK...hahaha alltaf jafn gaman að þessari krísu (eða hittó). Store laksedagen gekk...já hann bara gekk hehe...sátum öll í hring og sérfræðingur frá NINA stýrði rökræðunum. Allir fengu spjald á borðið sitt með nafni og hvaða stofnun/félag þeir voru fulltrúar fyrir. Var ansi pínlegt í byrjun og enginn vissi neitt...ég reyndi að segja eitthvað gáfulegt á norsku sem endaði með því að stjórnandinn spurði vinsamlega hvort ég vildi ekki bara gera þetta á ensku...þetta eru launin fyrir að reyna! Tók það náttúrulega ekki í mál
Þetta lagaðist svo aðeins og urðu nokkuð góðar rökræður og lærdómsríkar. Síðasta helgi var mjög skemmtileg bara. Var líffræðihittingur á föstudeginum og mættu yfir 20 masters og doktorsnemar ásamt starfsfólki og 2 bachelornemum = metmæting hingað til hehe. Skrapp svo í kvöldmat í seglbátinn til Ragnhild þar sem sötrað var rauðvín með matnum á meðan báturinn ruggaði í vindinum, mjög svo kósý. Laugardagskvöldið fór ég í bæinn með Lisbeth og slysuðumst við inná tónleika með einhverskonar norskri folkemusikk og var geggjað flott. Lisbeth hélt svo heim á leið og Ragnhild varð staðgengill og varð úr mjög skemmtilegt kvöld ásamt kennaranum okkar úr fisk og vilt hehe
Ég fékk minn langþráða snjó síðasta fimmtudag, kom ca. 1 cm þykkt lag, stór snjókorn og ótrúlega flott. Þar með var það búið! Fínt í 2 daga en svo fór að rigna aftur...ullabjakk...fór út að skokka í kvöld og byrjaði í fínasta haustveðri með smá vind sem endaði svo í hellidembu, hagléli, meiri dembu, hagléli, dembu og dembu...og ég rennandi blaut. Samt frískandi. Það er ekki hægt að segja annað en það sé hugsað um íslendingana hér í Noregi. Ísland er búið að vera í hverjum einasta fréttatíma og spjallþætti síðan í kreppubyrjun svo ég tali nú ekki um blöðin. Í dag fékk svo tölvupóst frá Fylkesmannen (sýslumanninum) hér í Troms-fylki þar sem hann bauð íslenskum námsmönnum í Tromsö formlega til hádegisverðar með spjalli til þess að ræða um stöðu okkar og hvernig okkur gengur á þessum krepputímum. Verð nú að segja að þetta er nú mjög fallega gert! Samkvæmt skólablaðinu eru ca. 10 íslenskir námsmenn í Tromsö. Ég get þó ekki mætt á þennan góða fund þar sem ég verð á Svalbarða en er búin að gefa skýrslu um mína stöðu...sem er nú bara mjög góð. Fékk loksins kort fyrir norksa bankareikninginn minn svo ég get loksins farið að nota launin mín, þvílík hamingja. Á föstudaginn er svo síðasti fyrirlestur í Fisk og vilt og að því tilefni ætlum við bekkurinn að halda harefest = héraveislu. Það verður sett upp lavvo (ísl: indíánatjald, mjög algengt hér), kveikt varðeld og eldað héragrýtu á eldinum, drukkið bjór og haft það kósý. Planið er að endurtaka þetta eftir prófið í desember og allir mæti með svefnpokana sína og við hrúgum okkur inn í lavvo með bjór og rauðvín og skemmtun þar til við lognumst út af...verður nææææs!Í gær hitti ég Lauvmakk-fjölskylduna mína og kynnti fyrir þeim niðurstöður sumarsins úr mínum hluta verkefnisins. Það gekk bara vel og urðu þau alveg jafn spennt og ég yfir niðurstöðunum sem eru hreint ótrúlega skemmtilegar og næstum erfitt að slíta sig frá verkefninu og fara að huga að prófalestri og öðru verkefnum. Jane er búin að taka heimasíðu verkefnisins í make-over frá A til Ö ef einhver vill fræðast eitthvað um þetta. Fyrir þá sem ekki vilja fræðast mæli ég með Photo gallerí og Field and lab images til þess að sjá hvað í ósköpunum ég var nú að gera í sumar og verð að gera næsta sumar
Enda þetta á slóðinni á síðuna og nokkrum myndum þaðan: www.birchmoth.com 


»
13.10.2008 20:06:18 / saga
Það er ég þessa dagana...sat í 10 tíma fyrir framan tölvuna að vinna í gögnum sumarsins í dag (fyrir utan ca. 3 tíma samanlagt í pásur hehe). Hneykslanlega langt frá síðasta bloggi, ég veit. Þetta krepputal er bara búið að vera svo niðurdrepandi...herre gud. Enda verður ekki minnst meira á það í þessu bloggi. Ég fékk feeeeeeeiiiitan launaseðil frá póstinum á föstudaginn svo ég er allavega í góðum málum
Mál málanna...ferðin til Alta var hreint út sagt geggjuð!! Þar voru veiddir, í algjörri paradís, allt að 14 kg laxar (og 103 cm) og 8 kg urriðar. Matur eldaður yfir varðeldi, grillað í grillhytte, síðasti hvalveiðibátur Noregs heimsóttur, rafveitt, drukkið bjór, snorklað niður ána og fiskarnir (og heimkynni þeirra) skoðaðir, sáum fuuuullt af örnum, sáum samana rétta með hreindýrahjarðirnar sínar og maaaargt fleira. Skólinn borgaði allt, þ.m.t. mat (grillaður lax og risarækjur, dýrindis morgunverður og fleira og fleira) og Audun kennari deildi út eðal V.S.O.P. meðan grillið var að hitna (enginn labbaspíri hér!) - ekki sem verst ha? En myndir segja meira en þúsund orð svo ég skelli nokkrum inn hér undir myndasíðurnar efst til hægri. Framundan er ýmislegt skemmtilegt. Næst á dagskrá er að hún Majken er að koma í heimsókn!! Fyrir þá sem ekki vita eða muna þá er það krúttið mitt frá því í Færeyjum 2005, vann sem campingboss á tjaldstæðinu og vann því fyrir sömu konu og ég og brölluðum við ýýýmislegt saman það sumarið. Hún frétti af ferðamannaráðstefnu sem byrjar hér í Tromsö en fer svo fram um borð í bát svo hún hringdi nokkur símtöl og suðaði og fékk leyfi til að mæta til þess að komast í heimsókn! Jibbíjeij!!! Það verður mánudagsbjór og meiri mánudagsbjór! Nenni ekki að skrifa meira í bili....ég sem var búin að plana alla ferðasöguna en jeminn...ekki séns að ég nenni...fólk verður bara að skella sér í svona ferð sjálft (þó það muni að öllum líkindum aldrei komast yfir veiðileyfi í Altaelva múahahaha) 
//NÝTT: Hér er videóið úr ferðinni sem ég setti á facebook:
KLIKKA HÉR TIL AÐ SJÁ




»
25.09.2008 20:40:17 / saga
Já það er sko farið að hausta! Snjóaði niður í ca. 300 m hæð í nótt og skógarnir urðu næstum sköllóttir á einni nóttu. Annars ætla ég að fá að kvarta smá. Fór í mitt fyrsta próf í morgun......jeminn einasti!! Fyrsta skipti sem ég fer í próf í einhverju sem ég hef ekki lært...fékk nefnilega vitlaust próf!! Þetta var semsagt tvískipt: allir taka sameiginlegan hluta en svo fær maður aukapróf í því sem maður tók þátt í á námskeiðinu. Í mínu tilviki tók ég felt-vinnu hlutann af námskeiðinu og bjóst því fastlega við að fá próf úr því....en neinei seisei....ég fékk spurningar um vinnu úti á sjó! Hvernig hljómar viðvörunarbjallan um bruna og "allir í björgunarbáta" um borð? Hvað á að halda oft æfingar um borð í rannsóknaskipi?? VEIT ÞAÐ EKKI!!! Kennarinn var kominn og farinn svo það var ekkert að gera við þessu...reyndi bara að svara öllu og ef ég fæ staðið þá nenni ég ekki að kvarta....leiðinlegt próf sem ég nenni ekki að taka aftur þar sem við fáum ekki einkunn. Ekki nóg með það þá var þetta á norsku, sem var svosem allt í lagi, nema að við áttum að skilgreina einhver öryggishugtök og dót....það var nú meira bullið....og þá er ég búin að kvarta
Næst á dagskrá er að sjóða saman fyrirlesturinn um småviltforvaltning og svo verður haldið í ævintýralegu laxaferðina til Finnmerkur! Vúje! Haustmynd frá Kattfjorden til að lífga upp á tilveruna:
»
07.09.2008 19:24:28 / saga
Já já þannig er nú það, hef bara ekki fengið bloggandann yfir mig í langan tíma
Ætla samt að reyna að hafa þetta ekkert óskaplega langt...Hmmm....hugsa....já ég er búin að synda í sjónum hérna á sjötugustu breiddargráðu. Sundið entist í ca. 2,5 sekúndur vegna gífurlegs kulda en okkur stelpunum hlýnaði fljótt í sólinni í fjörunni. Ég er búin að vera á öryggisnámskeiði eins og ég hef líklega minnst á áður en í síðustu viku tókum við heilan dag í að læra öryggisatriði á gúmmíbát. Mega gaman þar sem við fengum að eyða deginum í að æfa okkur að leggja að bryggju, upp í fjöru, koma okkur burt úr fjöru og hoppa í sjóin og æfa björgun. Lærðum á mótorinn að sjálfsögðu og allt um öryggi um borð. Svo kom verkefnið sem ég vinn við í landsfréttunum hér í Noregi í vikunni og var tekið langt viðtal við Snorre og sýndir myndir af faraldurssvæðunum í Finnmörku. Mjög mjög mjög gott fyrir verkefnið!! Hér er linkurinn fyrir þá sem vilja athuga hvort þeir skilji eitthvað í norskunni (fréttin kemur eftir 1-2 mínútur): Lauvmakk i Norge Fyrsti kúrsinn er byrjaður, fisk og vilt i nord, og já hann er á norsku, með norskri bók og við þurfum að halda nemendafyrirlestra....jesús minn eini segi ég nú bara. Annars er þetta ótrúlega áhugavert námskeið sem fjallar um strjórnum stofna og stjórnun á veiðum...allt frá elgjum, rjúpum og öðrum nytjadýrum til rándýra á borð við birni. Stórskemmtilegt verð ég að segja. Í þessum kúrs er á dagskránni ein ferð sem verður í lok mánaðarins en við keyrum þá í 4 tíma ennþá lengra norður til Alta og heimsækjum einhverja merkismenn, veiðum svo laxa og merkjum þá og förum svo að snorkla með stórlöxum! Geggjað spennó!! Hlakka gífurlega til. Ég skrapp á úti-tónlistarhátíð hér í bæ á síðustu helgi og sá meðal annars Sexpistols með Johnny Rotten í farabroddi, Travis, Amy MacDonald, Boney M og fleira skemmtilegt. Myndir af því eru komnar á facebook en ég hendi einhverjum inn hér í bloggið líka. Þann 1. september gekk ég eins og vanalega niður í strætó en varð litið upp á leiðinni á fjöllin í kring og varð heldur betur brugðið....það var snjór langleiðina niður hlíðarnar!! Snjólínan hefur eitthvað hækkað síðustu daga en ég held að snjórinn sé kominn til að vera, mér til mikillar ánægju! Annars hafa flestir dagar upp á síðkastið farið í nýju vinnunna mína sem póstburðarmaður
Er búin að vera í læri síðustu 2-3 vikur. Vinn 4 daga í næstu viku og þá er ég útskrifuð og mun vinna 3 laugardaga í mánuði. Þetta er stórskemmtilegt verð ég að segja og mega góður andi í vinnunni. Það eru rosalega margir að vinna þarna þar sem þetta er póstburðarstöð fyrir ca. 70 þús manns. Mitt teymi vinnur á Tromsø og mitt svæði nær frá miðbænum til syðsta hluta eyjarinnar. Á föstudaginn var stór dagur þar sem pósturinn var að sameinast einhverjum fleirum fyrirtækjum og fékk nýtt nafn og lógó og því flugu prumpandi blöðrur um salinn og stjórinn yfir teiminu mínu keypti forláta marsipantertu fyrir okkur, öðrum teimum til "mikillar ánægju". Annars er líka gaman að segja frá því að á meðan krónan stendur svona illa er ég með mega há tímalaun í íslenskum krónum...mega sega....mega!!
Vinnan er annars bara til þess að ég geti keypt mér turutstyr...orð sem ekki til í íslensku en myndi kannski útilátast sem hlutir sem koma að notum í ferðum og útivist. Ég keypti mér forláta gore-tex jakka, þriggja laga, á föstudaginn. Norsk, hágæðaframleiðsla. Næst á listanum er svo bakpoki fyrir dagstúra, 40L með góðum festingum fyrir bretti og skíði. Í dag ákvað ég svo að í vetur verða keypt telemark-skíði þar sem ég fann æfingafélaga fyrir veturinn. Í dag var nýji jakkinn svo prófaður í fyrsta topptúrnum. Ég, Ragnhild og Øyvind héldum upp til Sollidalsaksla sem er í um 750 m hæð. Gengum svo lengri leiðina til baka niður til Fløya og tókum fjellheisen / kláfinn niður frá kaffihúsinu þar. Þetta var ca. 4 tíma túr og fengum við slagviðri á toppnum, þoku, skítakulda, slyddu og skemmtilegheit. Jakkinn stóðst prófið með príði og vakti jafnvel öfund meðal ferðafélaganna
Stórskemmtilegur túr! Hér er mynd af undirritaðri komin niður á Fløya úr þokunni með Tromsø og Kvaløya í baksýn. Bæ ðe vei þá á ég heima hinum megin við hafið, ca. 2 cm til vinstri frá mér á myndinni. Annars koma nokkrar myndir á myndasíðuna og eitthvað smá á facebook. Klem, Saga
»
Síður:
1 2 3 ...
25